Lomi Lomi nudd - Relaxation Centre
Lomi Lomi er heildræn upplifun fyrir allan líkamann frá Hawaii. Í lauslegri þýðingu yfir á Íslensku stendur Lomi Lomi fyrir „elskandi snertingu“ en Lomi Lomi snýst um að tengja líkama, huga og sál aftur – það er sannarlega eitthvað sem þarf að upplifa. Hvort sem þú ert að leita að slökun, vilt tengjast líkamanum á ný eða vilt einfaldlega dekra við sjálfan þig, þá notar meðferðaraðilinn hefðbundna nudd olíur, ilmi og sérvalna tónlist til að auka þægindi og upplifun.